17 október 2005

Það verður kyrrðarstund í Fríkirkjunni á fimmtudagskvöldið þar sem Gospelkór Rvíkur mun syngja einhver lög. Yfirskrift kvöldsins er held ég "bæn gegn böli," held það verði beðið gegn eiturlyfjabölinu. Ekki veitir af.
Ég fór á samkomuna í Fíh salnum í gærkvöldi, þar sem Halldór Nikulás, a.k.a. Nick fór á kostum að venju. Nú verða bara allir að fara að kíkja þangað því sjón er sögu ríkari.
Annað must þessa dagana er búsáhaldaútsala Lindarinnar á Mýrargötu á laugardaginn. Ég fór síðasta laugardag með Árný og keypti voða fínar súpuskálar og fleira, það er mjög gaman að skoða þetta. Svo skaðar ekki að styrkja Lindina um leið...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já..það var sko fjör á báðum stöðum...lindarlagernum og fíh...!

þriðjudagur, 18 október, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey, sounds like a great sale...I'll be booking a flight from Maui today!

miðvikudagur, 19 október, 2005  
Blogger Helga Bolla said...

hey sis, þá fyrst yrði nú líf í tuskunum!

miðvikudagur, 19 október, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home