21 september 2005

Það styttist óðum í brúðkaupið, undirbúningur í hámarki. Það var æfing í kirkjunni í dag, hún gekk bara vel, ég er viss um að þetta verður mjög fallegt brúðkaup. Ég get alla vega lofað því að það hefur ekki sést flottari brúðgumi heldur en hann sonur minn, hann var að prófa fötin sín í kvöld og hann er bara stórglæsilegur!
Sorrý Ágústa mín, ég hélt það væri öllum augljóst að Símon minn er sá sem á linkinn "Monsablogg" hér til hliðar, fyrir neðan "Frumburðarblogg" sem er bloggið hans Daníels.
Það getur vel verið að ég hringi í þig Árný mín og biðji þig að hjálpa mér að renna upp kjólnum, það er ekki alveg hlaupið að því.
Later people...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

yrði mér heiður að renna upp kjólnum...það er nú fátt sem við sigrum ekki saman...

get ekki neitað að ég er komin með smá skámömmufiðring fyrir föstudeginum....

fimmtudagur, 22 september, 2005  
Blogger Che Simon said...

Þú hefur verið klukkuð! Þú átt að segja fimm hluti um sjálfa þig og klukka fimm aðra. Nánari upplýsingar á http://www.simonsegir.blogspot.com.

sunnudagur, 25 september, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home